Síðan 1965 – saga Herrahússins

Herrahúsið opnaði fyrst sumarið 1965 og hefur síðan þá verið fastur punktur í íslenskri herrafatnaðarsögu. Frá fyrsta degi hefur áherslan verið skýr: vandaður herrafatnaður, gott úrval stærða og persónuleg þjónusta þar sem hver viðskiptavinur fær tíma og athygli.

Í gegnum árin hefur Herrahúsið klætt karlmenn fyrir daglegt líf, vinnu, ferðalög, veislur og stærstu stundir lífsins. Við leggjum áherslu á klassísk snið og tímalausan stíl sem endist vel – frekar en skammlífar tískubylgjur.

Verslunin er í dag staðsett í Ármúla 27 í Reykjavík þar sem gott aðgengi og bílastæði gera viðskiptavinum kleift að koma við, skoða úrvalið, máta í ró og næði og fá faglega ráðgjöf.

Herrahúsið býður ekki upp á netverslun – við trúum því að rétta sniðið finni maður best í mælingu, spegli og samtali við reynslumikið starfsfólk.

Herrafataverslun síðan 1965

Hafðu samband

Sími: +354 552 9122
Netfang: info@herrahusid.is

Komdu við í Ármúla 27

Ármúli 27
108 Reykjavík
Ísland

© 2025 Herrahúsið. Allur réttur áskilinn.